English

Um Kórinn
Á döfinni
Útgáfa
Tengiliðir
Félagar
Myndasíðan
Sagan
Til kórfélaga
Bros vikunnar

 

 

  

 

 

 

 

Árnesingakórinn í Reykjavík var stofnaður 14. febrúar 1967. Kórinn hefur ferðast víða í áranna rás, meðal annars til Norðurlandanna og ýmissa annarra Evrópulanda. Auk þess hefur hann haldið fjölda tónleika víða um land og tekið þátt í kórastefnum.
Fyrsti stjórnandi Árnesingakórsins í Reykjavík var Þuríður Pálsdóttir. Haustiđ 2001 tók Gunnar Ben viđ stjórn kórsins. Undir stjórn hans hefur kórinn leyst af hendi ýmis krefjandi verkefni. Má þar nefna þátttöku í Choir Olympics, einni stærstu kórakeppni heims, í Bremen árið 2004 þar sem hann fékk silfurviðurkenningu í sínum flokki.
Árnesingakórinn í Reykjavík hefur áður gefið út tvo geisladiska og tvær hljómplötur. Í tilefni af 40 ára afmæli kórsins í febrúar 2007gaf kórinn út sinn þriðja geisladisk. Efnið á þeim geisladiski er fjölbreytt, sumt frumsamið og/eða tónsett af stjórnendum kórsins fyrr og nú en einnig má finna gamlar og nýjar perlur af söngskrá kórsins gegnum árin.

 

 

 

kor(hjá)kor.is

 

 

 

 

Nýjast