1981-1985
Vorið 1982
var farið vestur þar sem sungið var að
Logalandi og í Búðardal.
Á aðalfundi
haustið 1982 voru samþykkt lög kórsins.
Þann 16.
apríl 1983 voru haldnir sameiginlegir tónleikar
í Selfosskirkju með Samkór Selfoss og
Árneskórnum sem nú hafði bæst
í hópinn.
Kórinn
tók þátt í námskeiði
á vegum Landssambands blandaðra kóra 10.-13.
nóvember í Langholtskirkju og nefndist það
Ísklang.
Aðventusöngur
og kökusala í Austurstræti 17. desember.
Til gamans má geta þess að fyrir kökusölu
þurfti eftirfarandi leyfi:
- Heilbrigðisvottorð
frá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
- Leyfi frá Reykjavíkurborg
- Sérstakt leyfi
fyrir bíl eða tjaldvagn.
Ákveðið
var á aðalfundi 1984 að stefna á tveggja
vikna ferð til Noregs sumarið 1985. Farið var
að huga að fjáröflun og leita upplýsinga
hjá ferðaskrifstofum. 15. desember var sett upp
sölutjald á Lækjartorgi og ýmislegt
til sölu. Veðrið setti þó strik
í reikninginn,
tjaldið fauk
og brugðið var á það ráð
að selja varninginn úr bílnum hans Björgvins.
Kórinn efndi til happdrættis og meðal vinninga
var dilkur á fæti sem Sveinn Sæmundsson
gaf. Enginn vitjaði vinningsins og þannig villtist
kórinn óvart inn í landbúnaðinn.
Þetta var erfið staða og kom kórnum
í vanda því hann átti jú
ekkert búmark. En úr rættist þegar
bóndinn í kórnum, Sveinn Sæmundsson
bauðst til að taka lambið í hús
og ljá kórnum hlutdeild í búmarki
sínu. Skyldi nú freista þess að
stækka stofninn. Að vori 1986 skilaði ærin
einu lambi sem fór venjubundna leið í
gegnum sláturhúsið og þaðan
í bankann. Við þessa jákvæðu
reynslu óx mönnum bjartsýni og var ákveðið
að lengja vist ærinnar í húsi Sveins.
Vonuðu allir að hún skilaði a.m.k. 2
lömbum að vori.
Í júlí
1985 var farið í 14 daga ferð til Noregs,
Svíþjóðar og Danmerkur og var þá
fyrsti ferðaannáll kórsins skráður.
Hlín Torfadóttir var ráðin söngstjóri
1985. Jónas Ásgeirsson var gerður að
heiðursfélaga Árnesingakórsins
í Reykjavík á aðalfundi sama ár.
Kórinn tók þá einnig þátt
í Ísklang námskeiði í Langholtskirkju
31. október-3. nóvember.