1976-1980
Árið
1976 var engin starfsemi.
Eftir áramót
1976-1977 tók kórinn aftur til starfa undir
stjórn Vilhjálms Guðjónssonar og
Ragnars Þorgrímssonar þar til Haukur Ágústsson
tók við í apríl sama ár.
Haustið 1977
tók Jón Kristinn Cortes við stjórn
kórsins og blómstraði starfsemin.
Kórinn tók
þátt í kóramóti í
tilefni af 40 ára afmæli Landssambands blandaðra
kóra 14. og 15. apríl 1978. Sungið var í
Háskólabíói og Laugardalshöll.
Á starfsárinu
1978-1979 þurftu kórfélagar í fyrsta
skipti að greiða mánaðargjöld til
þess að standa undir rekstri kórsins. Starfsárið
1979-1980 var Helga Gunnarsdóttir ráðin
stjórnandi kórsins. Vorið 1980 var farið
í ferðalag á Snæfellsnes þar
sem sungið var í Stykkishólmi og á
Hellissandi. 12. apríl 1980 var samsöngur Árnesingakórsins
og Samkór Selfoss í Bústaðakirkju.
Voru þessir tónleikar upphaf að árlegu
samstarfi þessa kóra. Haustið 1980 tók
Guðmundur Ómar Óskarsson við stjórn
kórsins.